top of page
  • Writer's pictureVíðir Þór Þrastarson

Að auka hreyfingu í daglegu lífi



Góð vísa er aldrei of oft kveðin, það ætti að vera öllum ljóst að við erum sköpuð fyrir hreyfingu. Vissulega hefur tækniþróun undanfarinna ára auðveldað mörgum störf sín en spurning er hvort það sé ávallt til góðs.


Það er til að mynda alveg á hreinu að skrifborðsstóllinn getur verið skaðvaldur sé litið til lengri tíma. Ekki aðeins getur of mikil seta valdið vöðvabólgu, spennu og verkjum í stoðkerfi heldur einnig aukið líkur á offitu, áunni sykursýki og hjarta- og æðasjúkdómum.


Okkur er ekki ætlað að sitja eins og rækja allan daginn. Ráðlagt er að standa upp á 20 mín fresti, þ.e. þrisvar sinnum á klukkutíma yfir daginn. Ágætt getur verið að standa upp og rétta úr sér, ganga eftir vatnsglasi og passa að hafa prentarann í öðru herbergi og helst á annarri hæð.


Ýmislegt er síðan hægt að gera til að auka hreyfingu í daglegu lífi. T.d að ganga eða hjóla í vinnuna eða þá að leggja bílnum í góðri fjarlægð frá vinnustaðnum. Nota svo að sjálfsögðu stigann.


Á kvöldin er gráupplagt að taka göngutúr eftir matinn en það hefur sýnt sig í bættri meltingu og efnaskiptum svo minni líkur eru á fitusöfnun þá fátt eitt sé nefnt.


Ofan á aukna daglega hreyfingu hvet ég alla til að stunda fjölbreytta líkamsrækt amk þrisvar í viku. Hægt er að fá sér kort t.d í World Class og mæta í hóptíma eða fá sér einkaþjálfara og fá æfingaáætlun þar sem markvisst er unnið með þol, liðleika og styrk.


Ég hvet alla til að prófa að mæta í ræktina og finna sér eitthvað við hæfi. Fyrir þá sem ekki finna sig í ræktinni en vilja gera eitthvað fyrir líkama sinn er alveg hægt að gera léttar æfingar á skrifstofunni eins og myndin hér fyrir neðan sýnir:



Heilsan er það mikilvægasta sem við eigum, ef þú hefur ekki tíma fyrir heilsuna í dag, er óvíst að heilsan hafi tíma fyrir þig á morgun!

45 views0 comments

Recent Posts

See All

Yorumlar


bottom of page