top of page
  • Writer's pictureVíðir Þór Þrastarson

Að vera tengdur og í kyrrð



Flest erum við almennt undir miklu álagi. Hraðinn í þjóðfélaginu er mikill og Íslendingar vinna alla jafna meira en góðu hófi gegnir og gæta ekki að kalli líkamans eftir hvíld og eftir tengingu. Hugur fólks er mjög út á við, ef svo má að orði komast, sum sé allt annarsstaðar en í líkamanum. Sem dæmi má nefna þegar við sitjum við tölvuna þá er hugurinn út á við en ekki inn á við eins og við þurfum iðulega á að halda. Allt þetta kallar á streitu og er það mikið áhyggjuefni þar sem streita getur valdið tjóni á innviðum líkamans. Rannsóknir hafa sýnt fram á að streita og andlegt álag getur valdið skemmdum í DNA mengi fruma og valdið keðjuverkun sem getur leitt til alvarlegrar löskunar. Mikilvægt er því að reyna eftir fremsta megni að sporna gegn því.





Ýmsar góðar leiðir eru til þess en sú þægilegasta er einfaldlega að vera kyrr og í kyrrð. Þróunin í þjóðfélaginu er einfaldlega á þá leið að það er hreinlega erfitt að vera í kyrrð. Það eru læti í vinnunni, síminn að hringja hægri-vinstri. Við hækkum útvarpið í botn í bílnum á leiðinni heim og loks þegar heim er komið er kveikt á imbakassanum. Við í raun njótum þess aldrei að vera í kyrrð og hlusta á líkamann okkar. Oft er það því miður svo að við hlustum ekki fyrr en við höfum hreinlega orðið fyrir skaða. Allt í einu vöknum við upp rammskökk í bakinu, eða með bullandi vöðvabólgu í herðum og hálsinn fastur. Í flestum tilfellum er hægt að komast hjá þessu, einfaldlega með því að hlusta á skilaboðin sem líkaminn sendir okkur. Og að sjálfsögðu að fara eftir þeim.



Prófum endilega að gefa okkur tíma, 5 mín eða svo til að byrja með á kvöldin og jafnvel á morgnana, að vera í kyrrð, ekkert að trufla og bara hlusta á líkamann, hlusta inn á við. Gott er að anda vel á meðan á þessu stendur. Draga djúpt inn andann inn um nefið, fylla lungun og koma svo með langa fráöndun út um munninn. Hægt er að ímynda sér að við öndum alla leið niður í tær á innöndun og upp í höfuð með fráöndun. Með þessu erum við að tengja huga við hönd. Þetta hefur áhrif á orkuflæðið innan líkamans og er hin besta heilun.

Ýmislegt annað er hægt að gera. Það er hægt að fara í Yoga. Yin yoga er mjög vinsælt í dag og er í boði í World Class sem og á fleiri stöðum. Það er einnig hægt að verða sér út um slökunartónlist. T.d. diskinn slökun eftir Guðjón Bergmann (sem er á Spotify) en þá leiðir Guðjón hlustendur í gegnum slökunarferli þannig að hlustandinn fær djúpa slökun og tengingu.

Að lokum langar mig að benda á nudd en það er að mínu áliti besta leiðin til að fá djúpa slökun og tengjast sjálfum sér. Sjálfur hef ég stundað slökun og hugleiðslur í mörg ár og annars slagið farið í jóga. Allt er þetta gott og blessað en nuddið er klárlega í fyrsta sæti þegar kemur að djúpslökun. Þá er mikið atriði að anda djúpt og vel meðan á nuddinu stendur og síðan að vera á stað og stund. Ekki með hugann við vinnuna eða eitthvað sem truflar, heldur að fylgja því sem nuddarinn er að gera hverju sinni og finna þannig sterkt fyrir líkama sínum.

Ein áskorun til ykkur kæru lesendur: „Hugið að þessu, njótið kyrðarinnar, prófið ykkur áfram og munið að ef þið hafið ekki tíma fyrir heilsuna í dag er óvíst að heilsan hafi tíma fyrir ykkur á morgun.“ Fyrir utan hvað það er gott að slaka á og njóta kyrðarinnar, alger hugljómun – go for it.

Njótið vel í kyrrð og kærleika

9 views0 comments

Recent Posts

See All

Comments


bottom of page