Frændi minn og góðvinur hringdi í mig fyrir síðustu helgi og spurði hvað kostaði í nudd í Laugum. Ég sagði honum að heilnudd sem er 50 mín ásamt dagspassa í tækjasal og Baðstofu kostaði 15.000.- kr. Þetta fannst honum of dýrt og málið þar með sett í salt.
Á sunnudeginum kíki ég á kallinn í heimsókn. Hann kemur til dyra eins og hann hafði orðið fyrir valtara, hreinlega eins og barinn harðfiskur. Draugþunnur og ómögulegur. Hann hafði s.s farið á fyllerí í staðinn fyrir að njóta slökunar í Laugum. Ég spurði að gamni hvað kvöldið hefði kostað, hann vildi helst ekki hugsa út í það en taldi svo upp nokkrar upphæðir sem fóru í leigubílinn og á barnum.
En sá gamli fékk sér nokkra öllara og skot ásamt því að bjóða nokkrum gellum í glas sem þáðu sopann með þökkum en hurfu síðan á braut, fyrir utan eina sem hnéaði hann í punginn þegar hann gerðist aðeins of ágengur við að fá eitthvað í staðinn fyrir glasið. Hann hélt að kvöldið hefði kostar minnst 20.000.- kr. Ok, hann eyddi 5.000.- kr meira í að fara á djamm og sjóða nokkrar heilasellur, sía út mörg nauðsynleg næringarefni og hræra tímabundið í grunnefnaskiptunum, auk þess að vera helaumur í pungnum á eftir og loks að eyða deginum eftir í bælinu.
Hefði hann ákveðið að fjárfesta í heilsu sinni og komið í nudd hefði hann getað mætt um hádegi og tekið góða æfingu í salnum í Laugum, farið síðan í Baðstofuna og hitað sig vel upp fyrir nuddið. Slakað síðan vel á í nuddinu auk þess að njóta ávinning þess að unnið sé á stífum vöðvum, vöðvabólgu og hreyft við sogæðavökvanum sem sér um að sía út úrgangsefni. Loks að fá inn orku og heilun en allt þetta býður nudd uppá.
Eftir nuddið hefði kallinn síðan getað farið aftur í Baðstofuna og notið þeirra 6 gufubaða sem í boði eru, heita pottsins, kalda kersins, hvíldarherbergisins og notið þess að borða á veitingastaðnum Laugar Cafe sem staðsettur er í sjálfri baðstofunni.
Hann lofaði sjálfum sér því að næst myndi hann fjárfesta í nuddinu til að næra sig á líkama og sál og spara fimmarann. Í stað þess að spandera á djamminu og enda í líkamlegu og andlegu niðurrifi, með auman pung og bullandi þynnku.
Comments